Mikið að gera hjá okkur í dag, erum búin að vera á 100 að klára það sem þarf að klárast. Fórum m.a. í bankann með klinkbaukinn upp úr honum komu 13000 kr. Út frá þvi sköpuðust miklar umræður um mismun á kaup og sölugengi ýmissa gjaldmiðla, allavega færum við stutt á japönskum jenum sem Haukur vildi kaupa því það var svo lítill munur á kaup og sölugengi. Niðurstaðan eftir stuttan fjármálafyrirlestur var sú að líklegast væri best að þetta færi inn á hraðbankakortið hans Hauks og svo myndum við taka út úr hraðbanka í Ástralíu til að verða fyrir sem minnstum kostnaði. Nú er bara að fara að gíra sig upp í að setja i ca 10 þvottavélar og henda einhverjum fatalufsum í tösku og puða sér svo af stað
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli